fbpx
Fimmtudagur 15.maí 2025
433Sport

Segir koma til greina að taka upp umspilið í 2. deild einnig

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 18. október 2023 08:00

Vestri vann umspil Lengjudeildarinnar í ár. DV/KSJ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jörundur Áki Sveinsson, yfirmaður knattspyrnumála hjá KSÍ, segir koma til greina að taka upp umspil í 2. deild karla líkt og var gert í Lengjudeildinni í sumar.

Þetta var tekið fyrir í sjónvarpsþættinum 433.is þar sem Jörundur var gestur.

Í fyrsta sinn í sumar var sett á laggirnar umspil í Lengjudeild karla þar sem liðin í 2. – 5. sæti kepptu í umspili um að fylgja toppliði deildarinnar í Bestu deildina að ári. Vestri vann þetta tímabilið eftir að hafa hafnað í fjórða sæti deildarinnar.

„Mér fannst nýtt fyrirkomulag í Lengjudeildinni takast afskaplega vel til,“ sagði Jörundur í þættinum.

Hann var í kjölfarið spurður að því hvort það kæmi til greina að taka þetta upp á neðri stigum, eins og í 2. deild karla.

„Ég held að þetta hafi heppnast það vel að það verði skoðað. Hvort að það muni síðan gerast veit ég ekki en þetta heppnaðist mjög vel. Þetta er eitthvað sem við munum setjast yfir.“

video
play-sharp-fill

Sjónvarpsþátturinn 433.is og aðrir þættir á vegum síðunnar eru einnig aðgengilegir á helstu hlaðvarpsveitum undir „433.is“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Ekkert kemur í veg fyrir að hann endi hjá Liverpool

Ekkert kemur í veg fyrir að hann endi hjá Liverpool
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Dramatík og glæsimörk í Akraneshöllinni – Sjáðu allt það helsta frá gærkvöldinu

Dramatík og glæsimörk í Akraneshöllinni – Sjáðu allt það helsta frá gærkvöldinu
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Gætu átt yfir höfði sér dóm fyrir að dreifa kynferðislegu efni af stúlku undir lögaldri – Mjög þekkt nafn á meðal meintra gerenda

Gætu átt yfir höfði sér dóm fyrir að dreifa kynferðislegu efni af stúlku undir lögaldri – Mjög þekkt nafn á meðal meintra gerenda
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Flytur frá Manchester til Norwich

Flytur frá Manchester til Norwich
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Stjarnan þurfti vítaspyrnukeppni gegn 2. deildarliði Kára

Stjarnan þurfti vítaspyrnukeppni gegn 2. deildarliði Kára
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Yfirgaf ólétta eiginkonu fyrir tvítuga konu – „Mig langar til þess að æla“

Yfirgaf ólétta eiginkonu fyrir tvítuga konu – „Mig langar til þess að æla“
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Verður líklegast áfram á Englandi

Verður líklegast áfram á Englandi
Hide picture