fbpx
Mánudagur 12.maí 2025
433Sport

Hareide velur hópinn fyrir mikilvæga leiki í undankeppninni – Aron Einar ekki með

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 30. ágúst 2023 10:07

Mynd: Kristinn Svanur

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Age Hareide, þjálfari íslenska karlalandsliðsins, hefur opinberað hópinn fyrir komandi landsleiki gegn Lúxemborg ytra og Bosníu-Hersegóvínu hér heima.

Um er að ræða leiki í undankeppni EM 2024, þar sem Ísland er með 3 stig eftir fjóra leiki. Leikurinn gegn Lúxemborg fer fram 8. september og Bosníumenn mæta í heimsókn á Laugardalsvöll þremur dögum síðar.

Júlíus Magnússon og Orri Steinn Óskarsson eru á meðal þeirra sem koma inn í hópinn fyrir komandi leiki en Aron Einar Gunnarsson verður ekki með. Hann hefur verið meiddur.

Þá eru Daníel Leo Grétarsson, Birkir Bjarnason og Þórir Jóhann Helgason ekki heldur með en þeir hafa verið í undanförnum hópum. Arnór Sigurðsson er þá meiddur.

Hópurinn
Elías Rafn Ólafsson – C.D. Mafra – 4 leikir
Rúnar Alex Rúnarsson – Cardiff – 24 leikir
Hákon Rafn Valdimarsson – Elfsborg – 4 leikir
Hörður Björgvin Magnússon – Panathinaikos – 48 leikir
Sverrir Ingi Ingason – FC Midtjylland – 42 leikir
Guðlaugur Victor Pálsson – Eupen – 36 leikir
Hjörtur Hermannsson – Pisa – 25 leikir
Valgeir Lunddal Friðriksson – Hacken – 7 leikir
Kolbeinn Birgir Finnsson – Lyngby – 2 leikir
Ísak Bergmann Jóhannesson – Dusseldorf – 19 leikir
Jóhann Berg Guðmundsson – Burnley FC – 86 leikir
Arnór Ingvi Traustason – IFK Norrköping – 47 leikir
Júlíus Magnússon – Fredrikstad – 5 leikir
Alfons Sampsted – FC Twente – 17 leikir
Mikael Egill Ellertsson – Venezia FC – 13 leikir
Mikael Neville Anderson – AGF – 20 leikir
Hákon Arnar Haraldsson – Lille – 11 leikir
Kristian Nökkvi Hlynsson – Ajax – 0 leikir
Sævar Atli Magnússon – Lyngby BK – 4 leikir
Jón Dagur Þorsteinsson – OH Leuven – 28 leikir
Alfreð Finnbogason – Eupen – 67 leikir
Orri Steinn Óskarsson – FCK – 0 leikir
Willum Þór Willumsson G.A.E. – 3 leikir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Allt klappað og klárt – Ancelotti að taka við

Allt klappað og klárt – Ancelotti að taka við
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Skiptar skoðanir á því hvort Greenwood eigi afturkvæmt en tvö félög kanna möguleikann á að fá hann

Skiptar skoðanir á því hvort Greenwood eigi afturkvæmt en tvö félög kanna möguleikann á að fá hann
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Casemiro gefur í skyn að hann vilji halda áfram á Old Trafford

Casemiro gefur í skyn að hann vilji halda áfram á Old Trafford
433Sport
Í gær

Besta deildin: Víkingar á toppinn

Besta deildin: Víkingar á toppinn
433Sport
Í gær

,,Manchester united þarf að vera topp eitt“

,,Manchester united þarf að vera topp eitt“