Napoli hefur hafnað risatilboði Al Hilal í Victor Osimhen. L’Equipe segir frá þessu.
Osimhen var frábær fyrir Napoli á síðustu leiktíð er liðið varð Ítalíumeistari. Hann var í kjölfarið orðaður við stærstu félög Evrópu en undanfarið hefur útlitið verið á þann veg að hann verði áfram hjá Napoli.
Al Hilal gæti hins vegar breytt því.
Þó var fyrsta tilboði þeirra upp á 140 milljónir evra hafnað.
Napoli vill hærri upphæð en vonar þó fyrst og fremst að Osimhen skrifi undir nýjan samning, en samningur hans rennur út eftir tvö ár. Hinað til hefur ekki tekist að framlengja við hann.
Sádar hafa, eins og flestir vita, látið til sín taka á leikmannamarkaðnum í sumar. Fjöldi stjarna er kominn í deildina þar í landi.
Þá bauð Al Hilal 300 milljónir punda í Kylian Mbappe á dögunum en hann vildi ekki koma.