fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Óskar Hrafn eftir tapið: ,,Það var smá högg og sjokk“

Victor Pálsson
Þriðjudaginn 25. júlí 2023 22:06

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Breiðablik þarft á kraftaverki að halda ætli liðið áfram í næstu umferð forkeppni Meistaradeildarinnar.

Blikar spiluðu fínan leik gegn FC Kaupmannahöfn í kvöld en um er að ræða eitt stærsta lið Norðurlandana.

Tveir Íslendingar leika með FCK en Ísak Bergmann Jóhannesson og Orri Steinn Óskarsson komu báðir inná sem varamenn.

Óskar Hrafn Þorvaldsson ræddi við blaðamenn eftir tap sinna manna í kvöld.

,,Að einhverju leyti má segja að þetta hafi verið ósanngjörn niðurstaða en að öðru leyti þá nýttu þeir færin sín og fengu ekki á sig mark,“ sagði Óskar.

,,Þegar þú spilar á móti liði í þessum gæðaflokki þá þarftu að negla þetta og ef þú gerir það ekki algjörlega getur þetta farið svona.“

Það tók FCK ekki nema eina mínútu að skora í kvöld og viðurkennir Óskar að það hafi verið ansi hressilegt högg.

,,Það var högg og smá sjokk, það var mest það. Þetta er búið og þú getur ekki hugsað um það meira og þarft að reyna að koma þér inn í leikinn og hjálpa liðinu að ná áttum.“

,,Við stóðum ágætlega upp eftir þetta. Við höfum oft lent undir í Evrópu og klórað okkur upp úr holunni sem við búum til sjálfir. Við náðum þeim ekki í dag en við verðum að læra af þessu.

Nánar er rætt við Óskar hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn