fbpx
Sunnudagur 14.desember 2025
433Sport

Granit Xhaka er á förum frá Arsenal

Helgi Fannar Sigurðsson
Þriðjudaginn 16. maí 2023 15:51

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Granit Xhaka er á förum frá Arsenal í sumar.

Svisslendingurinn hefur átt frábært tímabil í nýju hlutverki á miðjunni hjá Arsenal.

Skytturnar hafa átt góðu gengi að fagna en eru að missa af Englandsmeistaratitlinum til Manchester City nú á lokasprettinum.

Samningur hins þrítuga Xhaka rennur út sumarið 2024. Hann verður ekki framlengdur og ætlar Arsenal því að selja hann í sumar.

Það er líklegt að Xhaka fari til Bayer Leverkusen. Félagið er til í að greiða 15 milljónir evra fyrir miðjumanninn og gefa honum fjögurra ára samning.

Xhaka hefur verið á mála hjá Arsenal síðan 2016. Hann kom frá Borussia Mönchengladbach.

Með Arsenal vann Xhaka enska bikarinn í tvígang.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Langskotið og dauðafærið – Stórsigur í vændum á Emirates?

Langskotið og dauðafærið – Stórsigur í vændum á Emirates?
433Sport
Í gær

Óvænt í titilbaráttu og á besta skriðinu í yfir hundrað ár

Óvænt í titilbaráttu og á besta skriðinu í yfir hundrað ár
433Sport
Í gær

Íþróttavikan: Stefán Pálsson fer um víðan völl

Íþróttavikan: Stefán Pálsson fer um víðan völl
433Sport
Í gær

Mikil reiði í garð FIFA vegna miðaverðs á HM – Kalla eftir breytingu

Mikil reiði í garð FIFA vegna miðaverðs á HM – Kalla eftir breytingu