
Cody Gakpo er að ganga í raðir Liverpool frá PSV. Greint var frá þessu á mánudag.
Liverpool mun alls greiða PSV um 45 milljónir punda fyrir þjónustu hins 23 ára gamla Gakpo. Félagið var tilbúið að greiða meira en United í fyrstu greiðslu, en Liverpool greiðir PSV 37 milljónir punda strax og á svo restin eftir að bætast ofan á.
Margir héldu að Gakpo færi til Manchester United en svo fór ekki. Talið er að Virgil van Dijk, miðvörður Liverpool, hafi átt þátt í því. Hann og Gakpo eru liðsfélagar í hollenska landsliðinu. Voru þeir saman á Heimsmeistaramótinu í Katar.
Ummæli Van Dijk frá því á HM hafa nú verið grafin upp.
„Eru Manchester United og Real Madrid á sama stigi eins og er? Engin vanvirðing en svo er alls ekki. Ég tel hann eiga inni næsta skref,“ sagði Van Dijk á HM og gæti hann hafa vitað eitthvað sem aðrir vissu ekki.
Tölfræði Gakpo í hollensku úrvalsdeildinni á þessari leiktíð er hreint ótrúleg. Hann hefur skorað níu mörk og lagt upp tólf í fjórtán leikjum.