
David Beckham er loks búinn að bregðast við harðri gagnrýni uppistandarans Joe Lycett vegna þátttöku fyrrum fótboltamannsins á Heimsmeistaramótinu í Katar.
Beckham er einn af sendiherrum HM í Katar og fær fyrir það háar fjárhæðir. Lycett gagnrýndi hann fyrir það þar sem mannréttindi margra hópa eru fótum troðin í landinu, þar á meðal hinsegin fólks.
Beckham hefur sýnt mikinn stuðning við samfélag hinsegin fólks í gegnum tíðina og var Lycett því vonsvikinn út að hann skildi taka að sér sendiherrahlutverkið.
Lycett sagðist ætla að gefa tíu þúsund pund af eigin pening í góðgerðamál sem vinna að málefnum hinsegin fólks ef Beckham hætti við að gerast sendiherra í Katar. Ef ekki ætlaði uppistandarinn að tæta upphæðina í sundur.
Beckham hætti ekki við og Lycett sýndi myndband af sér þar sem peningurinn var tættur. Það kom þó síðar í ljós að um gervipeninga væri að ræða og að tíu þúsund pund hafi raunverulega farð í góðgerðarmál.
Fulltrúar Beckham hafa nú tjáð sig um þetta. Þeir segja athæfi Lycett jákvætt og að það veki athygli á mikilvægri umræðu.
„David hefur verið hluti af mörgum Heimsmeistaramótum og öðrum mótum á alþjóðasviðinu sem leikmaður og sendiherra. Hann hefur alltaf trúað því að íþróttir geti gert heiminum gott,“ segir í yfirlýsingu.
„Knattspyrna, vinsælasta íþrótt í heimi, hefur vald til að koma fólki saman og breyta hlutum í samfélögum.
Við vonum að samtalið leiði til þess að fólki verði sýndur meiri samhugur og skilningur og að bæting náist.“