

Það eru bara tveir dagar í það að úrslitaleikur Heimsmeistaramótsins fer fram í Katar, fótboltaveislan er senn á enda.
Til úrslita leika Argentína og Frakkland, þetta er síðasti séns Lionel Messi að verða Heimsmeistari.
Messi var magnaður í undanúrslitum gegn Króötum en hvernig hann fór að hlutunum í þriðja marki Argentínu var magnað.
Kun Aguero fyrrum samherji Messi segir að áður en kappinn fékk boltann hafi hann vitað hvað væri að fara í gang.
Lengi hefur verið talað um að Messi skanni völlinn betur en nokkur annar, augu hans sjá allt sem getur gerst.
Áður óséð myndband af þriðja marki Argentínu er hér að neðan.
Kun Agüero talked on Arg TV how Messi directs his teammates to move around so he can receive the ball. Short pass to his feet is the secret. pic.twitter.com/yfUGPXnkcq
— Juan Arango (@JuanG_Arango) December 15, 2022