Byrjunarlið íslenska karlalandsliðsins fyrir vináttulandsleikinn gegn Suður-Kóreu er komið á hreint.
Leikurinn fer fram í Seúl og hefst klukkan ellefu.
Frederik Schram, Hörður Ingi Gunnarsson, Júlíus Magnússon, Viktor Karl Einarsson, Viktor Örlygur Andrason, Bjarki Steinn Bjarkason og Danijel Dejan Djuric koma inn í liðið frá tapleiknum í Sádi-Arabíu um síðustu helgi.
Leikurinn verður í beinni útsendingu á Viaplay.
🇮🇸 Byrjunarlið A karla gegn Suður Kóreu í dag.
⏰ Liðin mætast í vináttuleik á Hwaseong Stadium í Suður Kóreu kl. 11:00.
📺 Bein útsending á Viaplay.
👇 Our starting lineup against South Korea.#fyririsland pic.twitter.com/Xi8isoJKKM
— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) November 11, 2022