fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Samkvæmt reglum mátti Kjartan ekki spila eftir uppsögn

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 25. október 2022 09:30

John White

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Málefni Kjartans Henry Finnbogasonar hafa verið til umræðu undanfarna daga eftir að KR nýtti sér heimild til þess að segja upp samningi hans.

Fram hefur komið í máli KR-inga að þeir hafi þó vonast eftir því að Kjartan myndi klára tímabilið með liðinu en úr því verður ekki.

„Eins og þú orðar þetta þá er hann samningslaus eftir þetta og það er samningsskylda í efstu deild,“ segir Haukur Hinriksson yfirlögfræðingur KSÍ þegar málið er borið undir hann.

Rúnar Kristinsson þjálfari KR sagði eftir leik gegn Víkingum í gær að Kjartan hefði beðist undan því að klára tímabilið eftir að félagið sagði upp samningi hans.

Kjartan var látinn skrifa undir uppsögn á samningi sínum 13 október og er uppsögnin dagsett þá.. „Hann er með leikheimild og keppnisleyfi, hann er þá hins vegar ekki með samning í gildi og þú átt að vera samningsbundinn í efstu deild vegna tryggingamála,“ segir Haukur.

Rúnar sagði einnig um málið í gær. ,,Þennan örlagaríka fimmtudag þegar hann fær þessa pappíra til að skrifa undir þá gekk ég og við út frá því að þetta væri formsatriði,“ sagði Rúnar á Stöð2 Sport en nú er ljóst að þetta formsatriði gerði það að verkum að Kjartan mátti ekki spila lengur með KR samkvæmt reglum í leyfiskerfi KSÍ.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna
Sport
Í gær

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum
433Sport
Fyrir 2 dögum

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina
433Sport
Fyrir 2 dögum

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“
433Sport
Fyrir 2 dögum

United og Liverpool draga sig úr kapphlaupinu ef þetta er verðmiðinn

United og Liverpool draga sig úr kapphlaupinu ef þetta er verðmiðinn
433Sport
Fyrir 2 dögum

Gera hugsanlega hlé svo menn geti rofið föstuna

Gera hugsanlega hlé svo menn geti rofið föstuna
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir ekkert til í því að Klopp sé að hætta

Segir ekkert til í því að Klopp sé að hætta
433Sport
Fyrir 2 dögum

Liverpool setur miðvörð á óskalista sinn

Liverpool setur miðvörð á óskalista sinn