fbpx
Þriðjudagur 20.janúar 2026
433Sport

Helgi Sig tekur við Grindavík

Victor Pálsson
Sunnudaginn 9. október 2022 17:11

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Helgi Sigurðsson hefur verið ráðið inn sem þjálfari Grindavíkur í næst efstu deild, Lengjudeild.

Þetta staðfesti félagið í dag en hann mun taka við liðinu þann 1. nóvember er Bestu deildinni lýkur.

Alfreð Elías Jóhannsson var þjálfari Grindvíkinga er liðið hafnaði í sjötta sæti deildarinnar á tímabilinu.

Helgi hefur starfað sem aðstoðarþjálfari Vals en var einnig aðalþjálfari ÍBV og Fylkis.

Tilkynning Grindavíkur:

Helgi Sigurðsson hefur verið ráðinn nýr þjálfari hjá karlaliði Grindavíkur í knattspyrnu. Helgi gerir tveggja ára samning við Grindavík og mun stýra liðinu í Lengjudeild karla á næstu leiktíð.

Helgi hefur áður stýrt Fylki og ÍBV og stýrði báðum félögum upp úr 1. deild karla. Helgi á einnig að baki afar farsælan feril sem leikmaður í atvinnumennsku og sem landsliðsmaður Íslands.

„Ég er afar ánægður að fá Helga til félagsins,“ segir Haukur Guðberg Einarsson, formaður Knattspyrnudeildar Grindavíkur. „Helgi er kominn með þónokkra reynslu sem þjálfari og sérstaklega í Lengjudeildinni. Við höfum fulla trú á Grindavík muni taka skref í rétta átt með Helga við stjórnvölinn og að liðið muni á komandi tímabilum berjast við að komast upp í Bestu deildina á nýjan leik.“

Helgi mun klára tímabilið sem aðstoðarþjálfari hjá Val og hefja störf hjá Grindavík þann 1. nóvember næstkomandi.

„Ég er mjög spenntur að hefja störf hjá Grindavík. Hér er frábær aðstaða og Grindavík hefur fulla burði til að komast í deild þeirra bestu á nýjan leik,“ segir Helgi Sigurðsson. „Það er rík hefð hjá Grindavík og spennandi kjarni leikmanna til staðar hjá félaginu. Ég er þess fullviss að það eru spennandi tímar framundan hjá félaginu.“
Knattspyrnudeild Grindavíkur býður Helga hjartanlega velkominn til félagsins og væntir við mikils af samstarfinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Ummæli umboðsmanns Donnarumma um framtíð hans vekja furðu

Ummæli umboðsmanns Donnarumma um framtíð hans vekja furðu
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Ítalirnir reyna áfram og vonast til að Liverpool samþykki tilboð fyrir lok mánaðar

Ítalirnir reyna áfram og vonast til að Liverpool samþykki tilboð fyrir lok mánaðar
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Sjáðu nýjustu sprengjuna sem var varpað í stríðinu innan Beckham-fjölskyldunnar

Sjáðu nýjustu sprengjuna sem var varpað í stríðinu innan Beckham-fjölskyldunnar
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Yfirgefur Kópavoginn og er mættur aftur til Bandaríkjanna

Yfirgefur Kópavoginn og er mættur aftur til Bandaríkjanna
433Sport
Í gær

Jökull rifjar upp hvað hann sagði við fyrrum stjörnu Manchester United og hefði betur mátt sleppa – „Ég gleymi því aldrei“

Jökull rifjar upp hvað hann sagði við fyrrum stjörnu Manchester United og hefði betur mátt sleppa – „Ég gleymi því aldrei“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Líst afar vel á Jóa Kalla – „Hann er ekkert að grínast“

Líst afar vel á Jóa Kalla – „Hann er ekkert að grínast“