fbpx
Laugardagur 28.mars 2026
433Sport

Reyna að senda leikmenn á móti til að vinna slaginn um Abraham

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 19. janúar 2026 17:00

Tammy Abraham / Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nottingham Forest hefur áhuga á Tammy Abraham og hefur skoðað það að senda leikmann á móti sem hluta af kaupverði.

Tyrkneskir miðlar greina frá því að Forest berjist við Aston Villa um undirskrift enska framherjans, sem gekk til liðs við Besiktas á láni frá Roma síðasta sumar. Í lánssamningnum er ákvæði sem kveður á um möguleg varanleg kaup fyrir um 13 milljónir evra, sem talið er hafa verið virkjað. Því þurfa áhugasöm félög að semja beint við Besiktas.

Forseti Besiktas, Serdal Adalı, staðfesti í síðustu viku að tilboð hefði borist í Abraham. „Við viljum ekki missa hann,“ sagði hann, en bætti þó við að félagið væri opið fyrir viðræðum ef leikmenn kæmu inn í staðinn.

Samkvæmt Fanatik hefur Forest boðið framherjann Chris Wood í skiptum, en því tilboði var hafnað. Besiktas á að hafa komið með gagntilboð þar sem Taiwo Awoniyi var nefndur, þó framherjinn sé sagður horfa frekar til Þýskalands.

Þess má geta að Abraham lék á láni með Villa frá Chelsea fyrr á ferlinum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Arsenal sagt skoða mjög öflugan framherja

Arsenal sagt skoða mjög öflugan framherja
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Þrjú ensk lið á eftir varnarmanni Barcelona

Þrjú ensk lið á eftir varnarmanni Barcelona
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Roy Hodgson tekur þjálfaraúlpuna af hillunni og tekur við liði á Englandi

Roy Hodgson tekur þjálfaraúlpuna af hillunni og tekur við liði á Englandi
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Var sterklega orðaður við Breiðablik en gerir langtíma samning við Þór

Var sterklega orðaður við Breiðablik en gerir langtíma samning við Þór
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Flugfélag með væna pillu á Arteta á afmælisdegi hans

Flugfélag með væna pillu á Arteta á afmælisdegi hans
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Telja að annað félag komi til leiks ef Barcelona kaupir hann ekki í sumar

Telja að annað félag komi til leiks ef Barcelona kaupir hann ekki í sumar
433Sport
Í gær

Grátlegt fyrir Heimi og félaga

Grátlegt fyrir Heimi og félaga
433Sport
Í gær

Liverpool til í að rústa félagaskiptametinu fyrir draumaarftaka Salah

Liverpool til í að rústa félagaskiptametinu fyrir draumaarftaka Salah