fbpx
Miðvikudagur 11.febrúar 2026
433Sport

Myndband af Trent fer eins og eldur um sinu

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 19. janúar 2026 10:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Viðbrögð Trent Alexander-Arnold við vítaspyrnuklúðri Brahim Diaz í úrslitaleik Afríkukeppninnar fóru eins og eldur um sinu á samfélagsmiðlum í gærkvöldi.

Úrslitaleikur Marokkó og Senegal fór fram í Rabat og einkenndist af mikilli ringulreið undir lok venjulegs leiktíma. Dómarinn Jean-Jacques Ndala dæmdi umdeilda vítaspyrnu á Senegal eftir VAR-skoðun, sem vakti mikla reiði í herbúðum Senegala. Þjálfarinn Pape Thiaw skipaði leikmönnum sínum að ganga af velli í mótmælaskyni og liðu meira en 15 mínútur áður en leikurinn hófst á ný.

Brahim Diaz steig þá á punktinn fyrir Marokkó og tók Panenka-spyrnu, en Edouard Mendy varði auðveldlega. Trent Alexander-Arnold, fyrrum leikmaður Liverpool og nú Real Madrid, hvar hann spilar með Diaz, fylgdist með leiknum í beinni útsendingu ásamt bróður sínum. Viðbrögð hans við spyrnunni náðust á myndband og ætlaði hann vart að trúa eigin augum.

Senegal tryggði sér að lokum sigur í framlengingu með marki Pape Gueye og vann þar með annan Afríkumeistaratitil.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Rándýrar breytingar í Manchester – Svona verða þær

Rándýrar breytingar í Manchester – Svona verða þær
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Sjáðu hið dramatíska augnablik í Edinborg – Íslendingurinn hetjan undir lokin

Sjáðu hið dramatíska augnablik í Edinborg – Íslendingurinn hetjan undir lokin
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Það erfiðasta sem Slot hefur upplifað á ferlinum

Það erfiðasta sem Slot hefur upplifað á ferlinum
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Umdeildi sjónvarpsmaðurinn tjáir sig um áform sín – Yfirgaf eiginkonu sína til 36 ára til að vera með dóttur vinkonu sinnar

Umdeildi sjónvarpsmaðurinn tjáir sig um áform sín – Yfirgaf eiginkonu sína til 36 ára til að vera með dóttur vinkonu sinnar
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Klopp sagður til í að taka við ef þessi skilyrði eru uppfyllt

Klopp sagður til í að taka við ef þessi skilyrði eru uppfyllt