fbpx
Mánudagur 09.febrúar 2026
433Sport

Jökull einlægur: „Gaf mér hamingju aftur, bara í lífinu nánast“

433
Sunnudaginn 18. janúar 2026 10:00

Mynd: DV/KSJ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jökull Andrésson, markvörður FH, var gestur Íþróttavikunnar á 433.is og sat í setti með Helga Fannari Sigurðssyni og Herði Snævari Jónssyni.

Eins og margir vita yfirgaf Jökull uppeldisfélagið, Aftureldingu, eftir fall úr Bestu deildinni í sumar og gekk í raðir FH. Það var erfið ákvörðun.

„Það er rosalega erfitt að fara í ræktina í Mosó þessa dagana, mér líður bara eins og einhverjum svikara,“ sagði Jökull í gamansömum tón.

video
play-sharp-fill

„Það kom frétt um daginn að það hafi fundist snákur í Mosó, ég fékk fullt af skilaboðum um hvort það hafi verið ég,“ sagði hann enn fremur og hló.

„Þetta verður alltaf minn heimabær, þó ég sé kominn í annað lið. Ég er að fara að horfa á bróður minn spila á eftir og ég mun mæta á alla leiki.

Afturelding gaf mér hamingju aftur, bara í lífinu nánast. Það er eitthvað sem ég mun aldrei gleyma og er ótrúlega þakklátur fyrir. Ég óska þeim ótrúlega góðs gengis og verð stuðningsmaður númer eitt,“ sagði Jökull einlægur.

Umræðan í heild er í spilaranum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Birgir Ómar er látinn

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Mamman þénar meira en sjö leikmenn liðsins

Mamman þénar meira en sjö leikmenn liðsins
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Piers Morgan og Laura Woods tæta hana í sig fyrir nýjustu ummælin

Piers Morgan og Laura Woods tæta hana í sig fyrir nýjustu ummælin
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Valdimar hefði fengið betri laun en afþakkaði samt

Valdimar hefði fengið betri laun en afþakkaði samt
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Helgi mætti ekki aftur eftir þessa uppákomu – „Var eins og líkamsárás“

Helgi mætti ekki aftur eftir þessa uppákomu – „Var eins og líkamsárás“
433Sport
Í gær

Carrick búin að gera eitthvað í tvígang sem Amorim tókst bara einu sinni

Carrick búin að gera eitthvað í tvígang sem Amorim tókst bara einu sinni
433Sport
Í gær

Barcelona segir sig úr Ofurdeildinni og skilur Real Madrid eitt eftir

Barcelona segir sig úr Ofurdeildinni og skilur Real Madrid eitt eftir
433Sport
Í gær

Helga Jean var ekki skemmt – „Eitt og sér mjög magnað að vera með svona mikið egó“

Helga Jean var ekki skemmt – „Eitt og sér mjög magnað að vera með svona mikið egó“
433Sport
Í gær

Hjálmar heldur að margir séu á villigötum og að þetta gæti komið á óvart í sumar

Hjálmar heldur að margir séu á villigötum og að þetta gæti komið á óvart í sumar
Hide picture