fbpx
Fimmtudagur 12.febrúar 2026
433Sport

Yfirgefur Kópavoginn og er mættur aftur til Bandaríkjanna

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 19. janúar 2026 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þorleifur Úlfarsson hefur yfirgefið Breiðablik og gengið til liðs við Loudoun United í bandarísku USL-deildinni.

Sóknarmaðurinn kom heim úr atvinnumennsku síðasta vor og gekk í raðir Blika. Hann spilaði ekki fyrr en í lok móts vegna meiðsla en kom þá við sögu í þremur leikjum eftir tvískiptingu í Bestu deildinni og tveimur í Sambandsdeildinni.

Þorleifur sló í gegn í háskólaboltanum vestan hafs og fékk svo samning hjá Houston Dynamo í MLS-deildinni í kjölfarið. þaðan hélt hann til Debrecen 2024, áður en hann gekk svo í raðir uppeldisfélagsins, Blika, á ný.

Þessi 25 ára gamli leikmaður reynir nú fyrir sér erlendis á ný, en hann skrifar undir tveggja ára samning vestan hafs.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Opinberuðu tíðindin af Söndru með afar skemmtilegu myndbandi

Opinberuðu tíðindin af Söndru með afar skemmtilegu myndbandi
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Stjarnan unga sögð á blaði hjá fjórum liðum á Englandi

Stjarnan unga sögð á blaði hjá fjórum liðum á Englandi
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Rándýrar breytingar í Manchester – Svona verða þær

Rándýrar breytingar í Manchester – Svona verða þær
433Sport
Í gær

Sesko bjargaði stigi fyrir United í London

Sesko bjargaði stigi fyrir United í London
433Sport
Í gær

Chelsea glutraði forskotinu niður og vandræði Tottenham halda áfram – Sjáðu ótrúlegt klúður Palmer í blálokin

Chelsea glutraði forskotinu niður og vandræði Tottenham halda áfram – Sjáðu ótrúlegt klúður Palmer í blálokin