fbpx
Laugardagur 14.febrúar 2026
Pressan

Kíkti í símann hans vegna gruns um framhjáhald – Það sem hún fann var miklu verra

Pressan
Mánudaginn 19. janúar 2026 06:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandarískur djákni í kirkju einni í Tennessee í Bandaríkjunum hefur verið handtekinn og gæti átt þungan fangelsisdóm yfir höfði sér. Eiginkona hans tilkynnti hann til lögreglu á dögunum eftir að hafa farið í gegnum síma hans.

Maðurinn, Christopher Thomas Collins, er 42 ára gamall djákni í Abba‘s House-kirkjunni í bænum Hixson.

Samkvæmt dómsskjölum, sem New York Post vitnar til, grunaði eiginkona hans hann um framhjáhald. Fór hún í gegnum símann hans þegar hann bað hana að geyma hann fyrir sig þegar hann fór til tannlæknis.

Konan fór í gegnum símann og fann þá nektarmyndbönd af unglingsstúlku sem áður hafði starfað sem barnapía á heimili þeirra. Reyndust myndböndin hafa verið tekin með falinni myndavél á baðherbergi heimilis þeirra, að sögn lögreglu.

Myndböndin sýndu stúlkuna þar sem hún sást meðal annars fara í sturtu, nota salernið og skipta um föt.

Lögregla segir upptökurnar hafa verið teknar með litlum myndavélum sem voru faldar og beindust að sturtu og salerni. Í að minnsta kosti einu myndbandi virðist stúlkan taka eftir myndavélinni á meðan hún var að afklæðast.

Collins sagði eiginkonu sinni í fyrstu að myndavélarnar hefðu verið settar upp til að fylgjast með rottugangi á heimilinu.

Eftir uppgötvunina leitaði eiginkona hans til kirkjunnar Abba’s House eftir ráðgjöf. Þar var henni ráðlagt að hafa samband við lögreglu. Hún og börn hennar voru flutt á hótel til öryggis á meðan lögregla hafði uppi á Collins, sem var handtekinn skömmu síðar.

Lögregla lagði hald á farsíma Collins og fékk heimild til að leita í honum. Einnig fundust tvö SD-minniskort úr litlum myndavélum og eldri farsími. Rannsakendur segja alls níu myndbandaskrár, tímasettar árið 2025, hafa fundist.

Collins mun hafa viðurkennt í yfirheyrslu að hafa tekið upp myndböndin. Í kjölfar handtökunnar svipti kirkjan hann djáknatitli sínum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Samverkakona Epsteins segir að 25 karlmenn hafi gert þöggunarsamninga við þolendur

Samverkakona Epsteins segir að 25 karlmenn hafi gert þöggunarsamninga við þolendur
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Kanadíski Epstein“ afplánar 11 ára dóm – Bauð Andrew í heimsókn á karabíska lúxusgrenið sitt þar sem mansal og myrkraverk tíðkuðust

„Kanadíski Epstein“ afplánar 11 ára dóm – Bauð Andrew í heimsókn á karabíska lúxusgrenið sitt þar sem mansal og myrkraverk tíðkuðust
Pressan
Fyrir 3 dögum

Símtal Trump við lögreglu árið 2006 afhjúpað í Epstein-skjölunum – „Guði sé lof að þið ætlið að stoppa hann“

Símtal Trump við lögreglu árið 2006 afhjúpað í Epstein-skjölunum – „Guði sé lof að þið ætlið að stoppa hann“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ákærður fyrir að geyma dauða hvolpa og unga konu í flutningabíl

Ákærður fyrir að geyma dauða hvolpa og unga konu í flutningabíl
Pressan
Fyrir 4 dögum

Rússar með mann í haldi sem er grunaður um skotárásina

Rússar með mann í haldi sem er grunaður um skotárásina
Pressan
Fyrir 4 dögum

Á að leyfa köttum og hundum að sofa upp í? – Þetta segir dýralæknir

Á að leyfa köttum og hundum að sofa upp í? – Þetta segir dýralæknir