fbpx
Fimmtudagur 12.febrúar 2026
433Sport

Ungur maður svipti sig lífi eftir að hann var lokkaður aftur út í veðmál – Systir hans tjáir sig

433
Mánudaginn 19. janúar 2026 11:30

Oliver Long

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

36 ára stuðningsmaður Liverpool, Oliver Long, svipti sig lífi eftir að hafa verið lokkaður aftur út í fjárhættuspil á ólöglegum veðmálasíðum tengdum fótbolta. BBC fjallar um málið.

Long lést í febrúar 2024 eftir að hafa glímt við alvarlega spilafíkn. Við yfirheyrslur kom fram að hann hefði ítrekað reynt að hætta að spila og skráð sig í GamStop, sem lokar aðgangi manns að löglegum veðmálasíðum í Bretlandi. Þrátt fyrir það var honum markvisst beint á ólöglegar síður erlendis sem eru ekki undir eftirliti og komust framhjá GamStop.

Vegna spilafíknarinnar missti Long starf sitt, íbúð og sambúðarkonu til fimm ára. Bankayfirlit sýndu að hann tapaði um 20 þúsund pundum af sparnaði sínum í einum mánuði, apríl 2023.

Systir hans, Chloe Long, lýsti því fyrir dómi að veðmálin hefðu ekki aðeins svipt Ollie peningum, heldur friði, framtíð og að lokum lífinu. Hún sagði að hann hefði eingöngu veðjað á fótbolta og verið mikill Liverpool-aðdáandi. Stór veðmálavinningur snemma á lífsleiðinni hafi þá leitt hann út á þessa braut.

Formaður breska veðmálaeftirlitsins sagði að ólöglegar veðmálasíður miðuðu markvisst á fólk sem þegar væri í vanda og tengdust jafnvel skipulagðri glæpastarfsemi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Opinberuðu tíðindin af Söndru með afar skemmtilegu myndbandi

Opinberuðu tíðindin af Söndru með afar skemmtilegu myndbandi
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Stjarnan unga sögð á blaði hjá fjórum liðum á Englandi

Stjarnan unga sögð á blaði hjá fjórum liðum á Englandi
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Rándýrar breytingar í Manchester – Svona verða þær

Rándýrar breytingar í Manchester – Svona verða þær
433Sport
Í gær

Sesko bjargaði stigi fyrir United í London

Sesko bjargaði stigi fyrir United í London
433Sport
Í gær

Chelsea glutraði forskotinu niður og vandræði Tottenham halda áfram – Sjáðu ótrúlegt klúður Palmer í blálokin

Chelsea glutraði forskotinu niður og vandræði Tottenham halda áfram – Sjáðu ótrúlegt klúður Palmer í blálokin