Ólátabelgurinn Dele Alli er líklega á förum frá Tottenham en Antonio Conte telur sig ekki hafa not fyrir miðjumanninn.
Alli hefur ekki fundið takt sinn hjá Tottenham síðustu ár og gæti þurft nýja áskorun á sínum ferli.
Brighton hefur sett sig í samband við Tottenham og hefur áhuga á að fá enska miðjumanninn.
Brighton er þó ekki eina liðið því Newcastle, Burnley og Everton hafa öll einnig áhuga á að fá hann.
Alli skaust hratt upp á stjörnuhimininn hjá Tottenham en hefur átt erfitt með að halda dampi síðustu ár.