Þór 1 – 0 Vestri
1-0 Bjarni Guðjón Brynjólfsson (’63)
Þórsarar hafa verið á góðu skriði í Lengjudeild karla og spilaði liðið við Vestra heima í dag.
Um var að ræða eina leik dagsins í Lengjudeildinni og lauk honum með 1-0 sigri Þórs sem lyfti sér upp í áttunda sætið.
Þór var að vinna sinn þriðja leik í röð og er nú í afsaklega lítilli fallhættu, níu stigum frá KV sem situr þar með 11 stig.
Vestri er með 22 stig í sjöunda sætinum, tveimur stigum á undan Þór.