fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Ronaldo mætti til æfinga í morgun – Spilar hann á sunnudag?

Helgi Fannar Sigurðsson
Föstudaginn 5. ágúst 2022 10:08

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Cristiano Ronaldo mætti á æfingu hjá Manchester United í morgunsárið. Það er því ekki útilokað að hann verði í liðinu sem mætir Brighton í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar á sunnudag.

Ronaldo hefur verið orðaður frá Man Utd í allt sumar. Hann fór ekki með liðinu í æfingaferð til Asíu en spilaði æfingaleik gegn Rayo Vallecano í síðustu viku.

Ronaldo sneri aftur til Man Utd fyrir ári síðan, tólf árum eftir að hann yfirgaf félagið fyrir Real Madrid.

Man Utd olli hins vegar miklum vonbrigðum á síðustu leiktíð og hafnaði í sjötta sæti. Liðið leikur því ekki í Meistaradeild Evrópu á komandi leiktíð. Sjálfur átti Ronaldo gott tímabil. Hann skoraði 24 mörk í öllum keppnum.

Fyrr í dag var Ronaldo orðaður við Corinthians.

„Ég á mér stóra drauma. Þetta er Corinthians. Eru ekki Willian og Renato Augusto hér? Það er allt mögulegt í fótbolta og það er skylda mín að gera mitt besta fyrir Corinthians,“ segir Duilio Monteiro Alves, forseti brasilíska félagsins.

„Ég veit ekki hvort það er möguleiki. Við höfum ekki prófað þetta eða kafað dýpra. Við höfum hins vegar auga með honum, ef hann skyldi vilja spila í Brasilíu.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn