fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433

Erfitt val fyrir Ronaldinho sem kýs Liverpool

433
Laugardaginn 11. júní 2022 22:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Brasilíska goðsögnin Ronaldinho hefur valið það lið sem hann fylgist hvað mest með á Englandi og hefur mest gaman að.

Ronaldinho er nafn sem flestir ættu að kannast við en hann gerði garðinn frægan með Barcelona og var einn allra besti leikmaður heims.

Bikarmeistarar Liverpool eru í uppáhaldi hjá Ronaldinho en hann elskar að fylgjast með sóknarlínu liðsins.

Mohamed Salah, Sadio Mane, Luis Diaz, Roberto Firmino og Diogo Jota spila þar og koma Takumi Minamino og Divock Origi stundum við sögu.

Liverpool er talið vera með eina bestu sóknarlínu heims og var nálægt því að vinna fernuna á tímabilinu sem gekk að lokum ekki upp.

Þeir rauðklæddu voru stigi á eftir Manchester City í ensku deildini og töpuðu úrslitaleik Meistaradeildarinnar gegn Real Madrid.

,,Það er erfitt að velja bara eitt lið, það eru mörg lið sem ég er hrifinn af. Mér líkar við marga leikmenn í mörgum liðum,“ sagði Ronaldinho.

,,Það er erfitt að velja eitt, öll liðin eru með leikmenn sem ég vil fylgjast með en eins og staðan er þá er það sóknarlína Liverpool sem verður fyrir valinu.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn