England mætir Þýskalandi í þriðja riðli í A-deild í Þjóðadeildinni í kvöld. Englendingar töpuðu óvænt í fyrsta leik gegn Ungverjalandi og vonast eftir betri frammistöðu í kvöld en lærisveinar Gareth Southgate voru daufir og hugmyndasnauðir gegn Ungverjum.
Eins og mörgum er kunnugt tapaði England gegn Ítalíu í vítaspyrnukeppni í úrslitaleik EM síðasta sumar. Marcus Rashford, Bukayo Saka og Jadon Sancho klikkuðu allir á sínum spyrnum og fengu yfir sig holskeflu af niðrandi athugasemdum vegna húðlitar síns.
Aðspurður um hvort mögulegt kynþáttaníð gæti haft áhrif á hverjir færu næst á vítapunktinn sagðist Southgate ekki hafa leitt hugann að því.
„Ég verð að segja að ég hef ekki hugsað út í þetta,“ sagði hann á blaðamannafundi. „Þegar ég yfirgaf Grove (hótelið) hugsaði ég, hef ég skapað þetta vandamál fyrir strákana? En það væri ekki rétt að velja ekki bestu mennina á punktinn út frá því hvaða afleiðingar það gæti haft ef þeir skora ekki,“ bætti Southgate við.
„Ég verð að velja þá trúandi því að þeir muni skora. Þannig að nú er önnur staða komin upp sem gerir okkur mjög erfitt fyrir að vinna eitthvað,“ bætti Southgate við en vítaspyrnukeppnir hafa verið akkílesarhæll enska landsliðsins á stórmótum í gegnum tíðina.