fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Spádómurinn sem enginn botnar eitt né neitt í – „Þetta er mjög sérstakt“

433
Laugardaginn 7. maí 2022 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rætt var um Lengjudeildina í þættinum Íþróttavikan með Benna Bó á Hringbraut í gærkvöldi en hún rúllar af stað á Hringbraut í seinna í dag með leik Gróttu og Vestra klukkan 14. Vestra er spáð misjöfnu gengi í deildinni í sumar en Tómas Þór Þórðarsson, formaður Samtaka íþróttafréttamanna telur að liðið eigi ekki að enda neðar en 6. sæti.

Heimili Lengjudeildarinnar verður á Hrinbraut í sumar. 22 leikir verða sýndir í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni auk markaþáttar eftir hverja umferð.

,,Lengjudeildin fór af stað með tveimur frábærum leikjum á fimmtudaginn og í dag (laugardag) sýnum við leik Gróttu og Vestra í beinni útsendingu á Hringbraut. Þetta er landsbyggðadeild og við fylgjum henni vel eftir. Við munum sýna öll lið í beinni útsendingu í fyrri umferðinni og í seinni umferðinni handveljum við þetta betur eftir úrslitum og stöðu liða,“ sagði Hörður Snævar Jónsson, íþróttastjóri Torgs.

video
play-sharp-fill

Vestra er spáð 7. sæti í spá fyrirliða og forráðamanna liða í Lengjudeildinni en liðið fékk stig í öllum sætum deildarinnar í spánni sem hlýtur að teljast einsdæmi.

,,Þetta er mjög sérstakt,“ sagði Tómas Þór Þórðarsson, formaður Samtaka íþróttafréttamanna ,,Vestri á að sjálfsögðu ekki að fá stig í sæti neðar en sex myndi maður hald. Liðið er afskaplega vel mannað þrátt fyrir að hafa lent í þessari óvæntu þjálfarabreytingu,“ en Gunnar Heiðar tók við stjórnartaumunum fyrir Vestan þegar að Jón Þór Hauksson hvarf á braut og tók við stöðu Jóhannesar Karls hjá ÍA.

,,KSÍ vantaði þjálfara og þá þurfti Skaginn að fá þjálfara og þetta endaði með því að Gunnar Heiðar tók við Vestra. Eitthvað segir mér að forráðamenn Vestra hafa sjálfir sett liðið neðar í sína spá til þess að koma smá pressu af sér. Vestramenn voru farnir að gæla við efstu sætin í fyrra og ef Jón Þór hefði mögulega tekið fyrr við hefði Vestri geta verið í ágætis séns í fyrra.“

Nánari umræðu um Lengjudeildina má sjá hér fyrir neðan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn
Hide picture