Portúgalski þjálfarinn Paulo Fonseca kennir Fabio Paratici um að hafa ekki landað stjórasætinu hjá Tottenham í sumar.
Fonseca var nálægt því að verða næsti knattspyrnustjóri Tottenham í sumar eftir að José Mourinho var látinn taka poka sinn undir lok síðasta tímabils.
Fonseca hafði komist að munnlegu samkomulagi um að verða næsti stjóri Spurs en það breyttist allt þegar að Fabio Paratici var ráðinn yfirmaður knattspyrnumála hjá félaginu.
„Við höfðum komist að samkomulagi og vorum byrjaðir á því að plana undirbúningstímabilið og Tottenham vildi fá sóknarsinnaðan þjálfara,“ sagði Fonseca í viðtali á Telegraph.
„Það var ekki búið að tilkynna það opinberlega en við höfðum gert leikmenn klára fyrir undirbúningstímabilið. En hlutirnir breyttust þegar að yfirmaður knattspyrnumála var ráðinn og við vorum ósammála um nokkur atriði.
Ég er með ákveðin prinsipp. Ég vil þjálfa stór lið en ég vil að það sé rétta verkefnið og félag sem hefur trú á mínum hugmyndum, mínum leikstíl, og það var ekki raunin með yfirmann knattspyrnumála (Paratici).
Þetta er það sem forsetinn og íþróttastjórinn (Steve Hitchen) báðu um, að setja saman lið sem spilar sóknarbolta og ég var undirbúinn undir það. Það má ekki vera öðruvísi,“ sagði Fonseca.