Skoska liðið Aberdeen er komið áfram í 3. umferð forkeppni Sambandsdeildarinnar eftir 2-0 tap gegn BK Hacken í Svíþjóð í kvöld. Aberdeen vinnur einvígið 5-3 samanlagt eftir 5-1 sigur í fyrri leik liðanna í Skotlandi. Martin Olsson og Leo Bengtsson skoruðu mörk Svíanna á 53. og 68. mínútum leiksins.
Íslenski landsliðsmaðurinn Óskar Sverrison byrjaði á varamannabekknum fyrir Hacken en kom inn á á 74. mínútu.
Aberdeen mætir þá Breiðablik í 3. umferð forkeppninnar en leikirnir fara fram 5. og 12. ágúst næstkomandi.