12. umferð Lengjudeildarinn kláraðist á laugardaginn en markaþáttur fyrir umferðina var sýndur á Hringbraut í gærkvöldi.
Markaþáttur Lengjudeildarinnar fer yfir öll mörk umferðarinnar í deildinni og hefur svo sannarlega slegið í gegn á Hringbraut í sumar en gríðarlegt áhorf er á þættina.
Hörður Snævar Jónsson er stjórnandi þáttarins og Hrafnkell Freyr Ágústsson sérfræðingur þáttarins að venju. Þátt kvöldsins má sjá hér að neðan.