Jadon Sancho er við það að skrifa undir hjá Manchester United eftir að klúbburinn ákvað loksins að samþykkja verðmiðann sem Dortmund setur á kappann.
Dortmund vill fá 77 milljónir punda fyrir leikmanninn knáa en hingað til hefur enska stórveldið ekki vilja borga svo háa upphæð. Samkvæmt BILD þá hefur United nú sett fram nýtt tilboð þar sem þessum kröfum er mætt. Því er líklegt að þessi kaup fari í gegn á næstu dögum.
Sancho verður þriðji dýrasti leikmaður Manchester United frá upphafi. Aðeins Paul Pogba og Harry Maguire hafa verið dýrari.
Sancho er nú á Evrópumótinu í knattspyrnu með enska landsliðinu. Hann hefur aðeins fengið að spila níu mínútur á mótinu hingað til sem hefur vakið reiði aðdáenda.