Gary Neville, sérfræðingur SkySports um ensku úrvalsdeildina, segir að Jurgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, hafi tortímt eigendum félagsins í beinni útsendingu í kvöld.
Jurgen Klopp, var spurður að því hvað honum finndist um fyrirhugaða Ofurdeild sem Liverpool er eitt af stofnfélögunum að.
Klopp er andvígur deildinni, það stangast á við skoðun eigenda Liverpool en Klopp sagði að hann og leikmenn liðsins hafi aðeins fengið að vita af fyrirætlunum eigandanna í Ofurdeildinni í gær.
„Við fengum einhverjar upplýsingar en ekki mikið. Flest af því kom frá fjölmiðlum,“ sagði Klopp fyrir leik Liverpool og Leeds í kvöld.
Gary Neville segir viðtalið við Klopp fyrir leik Liverpool hafa mikið að segja.
„Jurgen Klopp hefur í kvöld látið í ljós skoðun sína á mjög rólegan máta sökum stöðunnar sem hann gegnir innan félagsins. Hann hefur með þessu tortímt eigendum Liverpool í beinni útsendingu. Hann hefur komið fram gegn áætlunum eigenda félagsins,“ sagði Gary Neville í útsendingu SkySports í kvöld.
Jamie Carragher, fyrrverandi leikmaður Liverpool og kollegi Gary Neville hjá SkySports, segir eigendur Liverpool ekki eiga von á góðu ef Klopp verði látinn fara á næsta 12 mánuðum vegna þessarar skoðunar sinnar.
„Ef þeir láta hann fara á næstu 12 mánuðum vegna þessarar skoðunar, þá get ég fullvisað ykkur um það að þeim verður bolað út úr félaginu á innan við viku,“ sagði Carragher sem ber greinilega mikinn kærleik í garð síns fyrrum félags. Hann hvatti í kvöld stuðningsmenn knattspyrnufélaga til að snúa bökum saman og koma í veg fyrir að Ofurdeildin verði að veruleika.
A must-watch Jurgen Klopp interview. Here’s what he has to say about the breakaway Super League.
🎥 Sky Sports pic.twitter.com/hdcPENNslL
— The Field (@thefield_in) April 19, 2021