fbpx
Miðvikudagur 05.nóvember 2025
433Sport

Þýski boltinn: Lewandowski með tvö í sigri á Dortmund í skemmtilegum leik

Helga Jónsdóttir
Laugardaginn 4. desember 2021 19:30

Robert Lewandowski / Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dortmund tók á móti Bayern Munchen í sannkölluðum stórleik í þýska boltanum. Bayern hafði betur í fjörugum leik.

Leikurinn byrjaði af krafti en Julian Brandt kom Dortmund yfir strax á 5. mínútu. Gestirnir voru þó ekki lengi að svara en Lewandowski jafnaði metin aðeins fjórum mínútum síðar. Kingsley Coman kom Bayern svo yfir á lokamínútu fyrri hálfleiks.

Gamanið hélt áfram í seinni hálfleik en Erling Braut Haaland jafnaði í byrjun seinni. Næst dró til tíðinda á 76. mínútu er gestirnir fengu vítaspyrnu sem Lewandowski skoraði úr. Þá fékk Marco Rose sitt annað gula spjald og þar með rautt sem gerði heimamönnum erfitt fyrir. Lengra komst Dortmund ekki og Bayern tekur stigin þrjú.

Bayern er í toppsætinu 34 stig en Dortmund í 2. sæti með 30 stig.

Dortmund 2 – 3 Bayern Munchen
1-0 Julian Brandt (´5)
1-1 Robert Lewandowski (´9)
1-2 Kingsley Coman (´44)
2-2 Erling Braut Haaland (´48)
2-3 Robert Lewandowski (´77)

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Þóroddur verður við störf á leik Crystal Palace í vikunni

Þóroddur verður við störf á leik Crystal Palace í vikunni
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Arteta kvartar undan álagi á liði sínu og krefst þess að deildin geri breytingar

Arteta kvartar undan álagi á liði sínu og krefst þess að deildin geri breytingar
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Carragher telur að Slot verði að taka á þessu ótrúlega vandamáli

Carragher telur að Slot verði að taka á þessu ótrúlega vandamáli
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Helgi Hrannar segir upp störfum í Garðabæ – „Vond ákvörðun og þá er best að yfirgefa sviðið“

Helgi Hrannar segir upp störfum í Garðabæ – „Vond ákvörðun og þá er best að yfirgefa sviðið“
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Stefnir í slag í London um spænsku markavélina

Stefnir í slag í London um spænsku markavélina