Jadon Sancho er búinn að koma Manchester United yfir gegn Chelsea í leik sem nú stendur yfir í ensku úrvalsdeildinni.
Um fyrsta mark Sancho í ensku úrvalsdeildinni er að ræða. Hann kom til Man Utd í sumar. Markið skoraði hann eftir slæm mistök Jorginho, miðjumanns Chelsea.
Sancho skoraði sitt fyrsta mark fyrir Man Utd í síðustu viku. Það kom í Meistaradeild Evrópu gegn Villarreal.
Smelltu hér til að sjá mark Sancho gegn Chelsea.