fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Berst fyrir lífi sínu eftir fólskulega árás í gærkvöldi

Aron Guðmundsson
Miðvikudaginn 20. október 2021 09:30

Leikmenn Manchester City fagna marki í gær/ GettyImages

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stuðningsmaður enska liðsins Manhester City berst nú fyrir lífi sínu á spítala í heimabæ einnar skærustu stjörnu liðsins, Kevin De Bruyne. Maðurinn er 63 ára en ráðist var á hann á bílastæði í bænum Drongen í Belgíu.

Atvikið átti sér stað eftir leik Manchester City og Club Brugge í Meistaradeild Evrópu í gær. Leiknum lauk með 5-1 sigri Manchester City.

Samkvæmt vefmiðlinum HLN í Belgíu var stuðningsmaðurinn á leið heim eftir leikinn, nokkrir stuðningsmenn Club Brugge komu auga á hann á bláan Manchester City trefil sem hann bar á sér. Þeir tóku treflinn af honum og þegar maðurinn bað um trefilinn sinn réðust þeir á hann.

Maðurinn er hluti af stuðningsmannaklúbbi Manchester City í Belgíu sem ber nafnið Blue Moon Belgium. Sonur hans er varaformaður í klúbbnum og hann tjáði sig við HLN eftir árásina.

,,Eftir leikinn stoppuðum við á bílastæði við E40 veginn í Drongen. Ég og félagar mínir lögðum af stað en pabbi var enn að bíða eftir vinum sínum. Þar nálgaðist hann stuðningsmaður Club Brugge sem tók af honum trefilinn. Þegar pabbi bað hann um að skila honum var hann sleginn í höfuðið,“ sagði Jurgen, sonur stuðningsmannsins sem ráðist var á.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn