fbpx
Föstudagur 04.júlí 2025
433Sport

Hrákamál Samherja vindur upp á sig – Gísli vill afsökunarbeiðni – „Ásakanir um falsfréttir, við líðum það ekki“

Máni Snær Þorláksson
Fimmtudaginn 30. júlí 2020 16:26

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Það stóð aldrei til að gera mál úr þessu en það fór fyrir brjóstið á okkur að viðurkenna þetta ekki heldur búa til ásakanir um falsfréttir, við líðum það ekki.“

Þetta segir Gísli Einarsson, fjölmiðlamaður og stjórnarmaður hjá knattspyrnufélaginu Skallagrími, í samtali við Fótbolta.net í dag. Málið sem um ræðir varðar leikmann Samherja en leikmaðurinn er sagður hafa skyrpt á leikmann Skallagríms í leik liðanna í fjórðu deildinni í gær. „Leikmaður Samherja hrækir á okkar leikmann og dómari dæmir ekkert. Stay classy fjórða deild,“ skrifaði Guðjón Gíslason, forráðamaður í liðsstjórn Skallagríms, á Twitter-síðu sína eftir leik liðsins gegn Samherjum.

„Það liggur fyrir að þetta gerðist og það er mjög undarleg fullyrðing og ásökun sem felst í orðum þjálfarans um að þetta sé kjaftæði. Enda eru fjölmörg vitni úr báðum liðum,“ sagði Gísli um málið „Leikmaðurinn frá Samherja bað okkar leikmann afsökunar í þrígang sem hann hefði varla gert ef hann hefði ekkert til saka unnið. Okkar leikmaður talaði við dómarann strax eftir atvikið og annar leikmaður talaði á sama tíma við aðstoðardómarann. Svo talaði enn annar við aðstoðardómarann eftir leik.“

Gísli segir það vera fjarri lagi að dómarar leiksins hafi ekki vitað af málinu en Sinisa Pavlica, þjálfari Samherja, sagði að dómarinn hafi ekki heyrt neitt frá Skallagrími um atvikið. Gísli segir að dómararnir hafi í raun vitað af málinu en þar sem þeir sáu ekki málið höfðu þeir vissulega ekki forsendur til að grípa til aðgerða. Gísli vill þó að það menn læri af þessu í ljósi COVID-19 faraldursins.

„Við biðjum menn að hafa það í huga að svona gerir maður ekki og sér í lagi þegar ástandið er eins og það er. Við óskum eftir að menn láti þetta verða sér víti til varnaðar. Við búum heldur ekki til sögur um leikmenn og að sitja undir því er óþolandi. Eðlileg viðbrögð þjálfara Samherja hefðu verið að biðjast afsökunar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Flaggað í hálfa á Anfield – Stuðningsmenn mæta með blóm og syrgja

Flaggað í hálfa á Anfield – Stuðningsmenn mæta með blóm og syrgja
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Vill vera áfram og fá nýjan samning frekar en að fara til Bayern

Vill vera áfram og fá nýjan samning frekar en að fara til Bayern
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Þorvaldur ræðir vinnuna á bak við tjöldin – „Þekking og kunnátta hafa hjálpað“

Þorvaldur ræðir vinnuna á bak við tjöldin – „Þekking og kunnátta hafa hjálpað“
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Knattspyrnuheimurinn í áfalli – Samúðarkveðjur og sorg eftir andlát Diogo Jota

Knattspyrnuheimurinn í áfalli – Samúðarkveðjur og sorg eftir andlát Diogo Jota
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Lífið lék við Jota þegar hann lést – Gifti sig fyrir tveimur vikum og átti þrjú börn

Lífið lék við Jota þegar hann lést – Gifti sig fyrir tveimur vikum og átti þrjú börn
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Gagnrýna vinnubrögð KSÍ í Sviss – „Þetta er klár­lega eitt­hvað sem við fjöl­miðlamenn mynd­um vilja breyta“

Gagnrýna vinnubrögð KSÍ í Sviss – „Þetta er klár­lega eitt­hvað sem við fjöl­miðlamenn mynd­um vilja breyta“