fbpx
Þriðjudagur 16.desember 2025
433Sport

KR vann ÍA á Akranesi – Pedersen með þrennu í fyrri hálfleik

Victor Pálsson
Sunnudaginn 28. júní 2020 21:10

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

KR gerði góða ferð á Akranes í kvöld er liðið spilaði við ÍA í þriðju umferð úrvalsdeildar karla.

Fyrri hálfleikur kvöldsins var engin frábær skemmtun en engin mörk voru á boðstólnum.

Ballið byrjaði á 48. mínútu er Steinar Þorsteinsson skoraði fyrir ÍA með góðu skoti sem Beitir réð ekki við í markinu.

Aron Bjarki Jósepsson var næstur á blað en hann jafnaði metin fyrir KR stuttu seinna eftir hornspyrnu.

Kristján Flóki Finnbogason tryggði KR svo stigin þrjú eftir fallegt spil. Seinna fékk KR vítaspyrnu en Pálmi Rafn Pálmason klikkaði á punktinum. Lokatölur, 1-2.

HK tókst á sama tíma ekki að fylgja á eftir frábærum 0-3 útisigri á KR í annarri umferð.

HK fékk Val í heimsókn í kvöld og tapaði 4-0 þar sem Patrick Pedersen skoraði þrennu í fyrri hálfleik.

ÍA 1-2 KR
1-0 Steinar Þorsteinsson (48′)
1-1 Aron Bjarki Jósepsson (53′)
1-2 Kristján Flóki Finnbogason (61′)

HK 0-4 Valur
0-1 Patrick Pedersen (19′)
0-2 Patrick Pedersen (21′)
0-3 Patrick Pedersen (víti, 38′)
0-4 Birkir Heimisson (87′)

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Eigandi Chelsea tengdur miðabraski – Hækka verðið um tæp 5 þúsund prósent

Eigandi Chelsea tengdur miðabraski – Hækka verðið um tæp 5 þúsund prósent
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Forráðamenn United segja Bruno Fernandes segja ósatt

Forráðamenn United segja Bruno Fernandes segja ósatt
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Fabrizio Romano með tíðindi af framtíð Alberts – Segir líklegt að eitthvað stórt geti gerst í janúar

Fabrizio Romano með tíðindi af framtíð Alberts – Segir líklegt að eitthvað stórt geti gerst í janúar
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Seðlabankastjórinn leggur skóna á hilluna

Seðlabankastjórinn leggur skóna á hilluna
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

United sagt skoða sölu í janúar til að fjármagna kaup

United sagt skoða sölu í janúar til að fjármagna kaup
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Sagðir skoða það að reka Frank og ráða fyrrum miðjumann Barcelona

Sagðir skoða það að reka Frank og ráða fyrrum miðjumann Barcelona