fbpx
Föstudagur 31.október 2025
433Sport

Myndir: Ragnar Bragi tví kinnbeinsbrotinn eftir átökin í Garðabæ í gær

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 16. júní 2020 08:00

Ragnar Bragi hér í mynd.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það voru væntanlega ófáir Stjörnumenn glaðir í gær eftir leik liðsins við Fylki í efstu deild karla. Um var að ræða fyrsta leik beggja liða á þessu tímabili og var spilað á heimavelli Stjörnunnar í Garðabæ. Stjarnan byrjaði ansi illa og komst Fylkir yfir með marki frá Valdimari Þór Ingimundarsyni á fyrstu mínútu.

Markavélin Hilmar Árni Halldórsson jafnaði metin fyrir Stjörnuna á 26. mínútu en hann skoraði geggjað mark beint úr aukaspyrnu. Ólafur Ingi Skúlason fékk rautt spjald hjá Fylki á 88. mínútu en hann átti ljóta tæklingu á Alex Þór Hauksson og dómurinn réttur. Stjarnan náði svo að tryggja stigin þrjú í uppbótartíma er ungstirnið Ísak Andri Sigurgeirsson skoraði.

Ragnar Bragi Sveinsson fyrirliði Fylkis var fluttur með sjúkrabíl af vellinum eftir samstuð við Daníel Laxdal seint í síðari hálfleik.

Ragnar staðfesti í samtali við blaðamann seint í gærkvöldi að hann væri tví kinnbeinsbrotinn og væri á leið í aðgerð í dag. Búist er við að Ragnar verði frá í 4-8 vikur vegna atviksins. Ragnar bar sig vel þrátt fyrir brotið og gaf blaðamanni leyfi fyrir að birta myndir af brotinu hér að neðan en sjá má hvernig beinið er farið inn hér að neðan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Gareth Owen ráðinn tæknilegur ráðgjafi Vals

Gareth Owen ráðinn tæknilegur ráðgjafi Vals
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Svona væri staðan ef föst leikatriði væru tekin úr jöfnunni – Arsenal og United væru í djúpum skít

Svona væri staðan ef föst leikatriði væru tekin úr jöfnunni – Arsenal og United væru í djúpum skít
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Stóra tilboðið til Salah frá Sádí Arabíu enn í gildi

Stóra tilboðið til Salah frá Sádí Arabíu enn í gildi
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Horfa til Manchester City þegar Marc Guehi fer næsta sumar

Horfa til Manchester City þegar Marc Guehi fer næsta sumar
433Sport
Í gær

Svíkur loforð skömmu eftir að hann gaf það – Húðflúr vekur mikla athygli

Svíkur loforð skömmu eftir að hann gaf það – Húðflúr vekur mikla athygli
433Sport
Í gær

Þorsteinn útskýrir ákvörðun sína – „Gott að koma inn fyrsta markinu“

Þorsteinn útskýrir ákvörðun sína – „Gott að koma inn fyrsta markinu“