Wolves er komið áfram í Evrópudeildinni eftir einvígi við Espanyol en seinni leikurinn fór fram á Spáni í gær.
Espanyol vann 3-2 sigur í gær en Wolves hafði unnið sannfærandi sigur á heimavelli.
Eftir leik var þó aðeins eitt atvik sem var rætt og það var færið sem Neto, leikmaður Wolves klikkaði á.
Neto var einn á móti marki, hann hafði komist framhjá markverði Espanyol en gat ekki hitt á markið.
Eitt ótrúlegasta klúður sem fólk hefur séð eins og sjá má hér að neðan.
How Neto missed this goal is what I don’t understand😳#UEL pic.twitter.com/fGRncXo6bF
— Fred Diaries⚘ (@fred_diaries1) February 27, 2020