Páll Kristjánsson formaður KR fagnar þeirri ákvörðun KSÍ að gefast ekki upp og reyna allt sem hægt er til að klára Íslandsmótin í knattspyrnu. KSÍ staðfesti þá ákvörðun sína í gær að reynt yrði að hefja leik aftur í byrjun nóvember ef reglugerð yfirvalda leyfir. Allt hefur verið stopp í rúmar tvær vikur vegna kórónuveirunnar.
„Að mótum meistaraflokka verði haldið áfram í öllum deildum að því tilskyldu að takmarkanir á æfingum og keppni verði afnumdar eigi síðar en 3. nóvember,“ sagði í yfirlýsingu KSÍ.
Talsverður fjöldi félaga vildi hreinlega blása mótið af á þessum tímapunkti, flest höfðu talsvert mikla hagsmuni af því að hætta leik. KR-ingar hafa aftur á móti mikla hagsmuni af því að mótið verði klárað en liðið er í harðri baráttu um Evrópusæti en hefði mótinu verið hætt hefði KR misst af því.
„Í fyrsta lagi þá trúðum við því aldrei að mótinu yrði slaufað og í öðru lagi, án þess að vera með of miklar yfirlýsingar, hefðum við aldrei setið þegjandi og hljóðalaust undir því ef mótinu yrði slaufað. Það voru og hafa aldrei verið neinar forsendur fyrir því og við teljum afar brýnt að úrslitin ráðist inni á vellinum,“ sagði Páll við Morgunblaðið og má túlka að KR hefði skoðað það að fara í mál við Knattspyrnusambandið.
Flestar deildir í Evrópu hafa reynt að klára öll sín mót en í Frakklandi og Hollandi var allt blásið af í vor, það hefur skapað mikil leiðindi og málaferli í þeim löndum.
„Ef við horfum í kringum okkur og sjáum hver staðan er hjá þjóðum sem ákváðu að hætta keppni síðasta vor held ég að flest knattspyrnusambönd sjái eftir þeirri ákvörðun. Þar eru málaferli og almenn leiðindi í gangi, eitthvað sem við eigum ekki að þurfa að fara í hér á Íslandi,“ sagði Páll við Morgunblaðið.