fbpx
Sunnudagur 28.desember 2025
433Sport

Malmö staðfestir samtal við Viðar en hann gæti verið með of háar launakröfur

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 8. janúar 2020 13:45

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Malmö FF í Svíþjóð hefur staðfest að félagið hafi áhuga á að fá Viðar Örn Kjartansson, frá Rostov en Viðar leitar sér að nýju félagi. Hammarby hefur sama áhuga.

Viðar er orðaður við Malmö og Hammarby en hann hefur leikið fyrir bæði félög, hann var á láni hjá Hammarby á síðustu leiktíð og skoraði sjö mörk í 15 leikjum.

Viðar hefur síðan verið á láni hjá Rubin Kazan en vill komast frá Rússlandi og er mest orðaður við lið á Norðurlöndum.

,,Við erum í sambandi við Viðar, við vorum ánægðir með hann hérna síðast og hann hentar okkar leikstíl. Það er gagnkvæmt ást okkar á milli,“
sagði Jesper Jansson, yfirmaður knattspyrnumála hjá Hammarby.

Malmö segir að Viðar gæti reynst félaginu of dýr í dag, laun hans séu þannig að það gæti reynst félaginu erfitt að borga þau. Það geti þó breyst ef leikmenn fari frá félaginu.

Viðar skoraði 14 mörk í 20 leikjum þegar Malmö varð meistari árið 2016 en var þá seldur til Maccabi tel Aviv.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Leikmenn Liverpool enn að jafna sig eftir andlátið í sumar

Leikmenn Liverpool enn að jafna sig eftir andlátið í sumar
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Fyrrum stórstjarna mögulega á leið í fangelsi vegna kynferðisbrots – Þarf að svara fyrir sig á næstu dögum

Fyrrum stórstjarna mögulega á leið í fangelsi vegna kynferðisbrots – Þarf að svara fyrir sig á næstu dögum
433Sport
Í gær

Má ekki byrja að hugsa um stórlið eins og Real Madrid – ,,Ferillinn hefur staðið yfir í tvö ár“

Má ekki byrja að hugsa um stórlið eins og Real Madrid – ,,Ferillinn hefur staðið yfir í tvö ár“
433Sport
Í gær

Skammaðist sín eftir að hafa tekið sína bestu ákvörðun – ,,Ég var algjör aumingi“

Skammaðist sín eftir að hafa tekið sína bestu ákvörðun – ,,Ég var algjör aumingi“
433Sport
Í gær

Hefur reynt allt til að hjálpa Jesus á erfiðum tímum

Hefur reynt allt til að hjálpa Jesus á erfiðum tímum
433Sport
Í gær

Tvíburar á bekknum í úrvalsdeildinni

Tvíburar á bekknum í úrvalsdeildinni