Brendan Rodgers, stjóri Leicester, er með góðar fréttir fyrir lið Manchester United.
United er á eftir James Maddison, leikmanni Leicester en hann er einn mikilvæasti leikmaður liðsins.
Rodgers hefur nú viðurkennt það að United gæti tryggt sér leikmanninn fyrir rétt verð.
,,Leikmenn upplifa alltaf eitthvað freistandi á ferlinum en það þýðir ekki að félagið vilji selja,“ sagði Rodgers.
,,Auðvitað þá fara viðræður í gang ef borgað er sett kaupverð en það er ekki eitthvað sem við vonumst eftir.“
,,Ég er raunsær og ég skil hvernig markaðurinn virkar. Við erum þó ekki að vonast eftir þessu eða að ýta í þetta.“