fbpx
Fimmtudagur 25.desember 2025
433

Fjalar: Vonum að FH vinni bikarinn

Victor Pálsson
Laugardaginn 31. ágúst 2019 21:17

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjalar Þorgeirsson, aðstoðarþjálfari Stjörnunnar, segir að liðið verði að vona það að FH vinni Mjólkurbikarinn.

Stjarnan er nú þremur stigum frá Evrópusæti eftir 3-1 tap gegn FH í kvöld en eitt auka sæti kemur inn ef FH vinnur bikarinn og hafnar í þriðja sæti.

,,Það er aldrei gott að tapa leikjum, við byrjum ekkert svakalega vel en vorum góðir fram að 60. mínútu og svo skora þeir jöfnunarmark og eftir það virtist leikur okkar hafa hrunið,“ sagði Fjalar við Stöð 2 Sport.

,,Það er góð klisja að mörk breyti leikjum og það er nákvæmlega það sem gerðist. Við vorum með góð tök, við fáum svo mark á okkur sem við eigum ekki að fá og missum svo tökin. Hrós á FH sem gerði þetta vel.“

,,Við eigum þrjá leiki eftir og förum í þá alla til að vinna. Við misstum FH fram úr okkur og nú fáum við pottþétt lið í bakið á okkur sem vinna á morgun. Við verðum að vona að FH vinni bikarinn þá kemur eitt auka sæti í Evrópu.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Slot: „Þetta eru mikil vonbrigði“

Slot: „Þetta eru mikil vonbrigði“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Alves að kaupa félag og ætlar að spila sjálfur

Alves að kaupa félag og ætlar að spila sjálfur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur ekki lengur til greina hjá United að losa Mainoo út af þessu

Kemur ekki lengur til greina hjá United að losa Mainoo út af þessu
433Sport
Fyrir 2 dögum

Hojlund sendi sneið á Manchester United eftir sigur í gær

Hojlund sendi sneið á Manchester United eftir sigur í gær
433Sport
Fyrir 2 dögum

Salah hetja Egyptalands

Salah hetja Egyptalands
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þessi koma til greina í kjörinu á íþróttamanni ársins

Þessi koma til greina í kjörinu á íþróttamanni ársins