Albert Brynjar Ingason, leikmaður Fjölnis, birti ansi skemmtilega Twitter-færslu á eigin aðgangi á dögunum.
Albert er þekktastur fyrir tíma sinn hjá Fylki en hann ákvað að færa sig yfir í Fjölni fyrir tímabilið.
Albert birti mjög fyndið bréf frá manni sem kallar sig Klaus og er víst hálfleikur í fótboltaleik.
Þessi ágæti maður skrifar bréfið í gegnum Google Translate en hann segist vera 33 ára gamall hálfleikur frá Brasilíu.
Hann vill spila fótbolta hér heima fyrir Fylki og er tilbúinn að gera það launalaust miðað við bréfið.
Orð eru óþörf en bréfið má sjá hér fyrir neðan.
Klaus, 33 ára hálfleikur að reyna komast í Fylki. pic.twitter.com/O79C2qHyUn
— Albert Ingason. (@Snjalli) 13 August 2019