Ilkay Gundogan, leikmaður Manchester City, viðurkennir að liðið eigi ekki möguleika á að vinna ensku deildina á tímabilinu.
City er 14 stigum frá Liverpool eftir 16 umferðir og telur miðjumaðurinn að kapphlaupið sé búið.
,,Við erum ansi langt frá okkar bestra. Augljóslega hefur tímabilið verið ansi erfitt,“ sagði Gundogan.
,,Það er nú þegar mikið bil á milli okkar og Liverpool. Við getum ekki neitað því að titilbaráttan er búin fyrir okkur.“
,,Það sem við þurfum að gera er að stefna á Meistaradeildina fyrir næstu leiktíð.“