Það er búið að fresta stórleik kvöldsins sem átti að fara fram í frönsku úrvalsdeildinni.
Þetta var staðfest í dag en leikur Monaco og Paris Saint-Germain átti að fara fram í Monaco.
Slæmt veður og mikil rigning hefur hins vegar komið í veg fyrir það og fer viðureignin ekki fram.
Leikar áttu að hefjast klukkan 20:00 en völlurinn í Monaco er ekki í leikhæfu standi.