Mario Mandzukic framherji Juventus og Króatíu er ekki að æfa með liðinu þessa dagana. Um er að ræða samkomulag sem félagið gerði við hann.
Juventus vill losna við Mandzukic en ekki tókst að finna lið fyrir hann í sumar. Mandzukic á tæp tvö ár eftir af samningi sínum.
Þessi 33 ára gamli framherji hefur verið orðaður við Manchester United, hann má finna sér nýtt lið og hefja æfingar með því. Þetta segja forráðamenn Juventus, en félagið vill hann burt þegar félagaskiptaglugginn í janúar opnar.
,,Mandzukic æfir ekki með okkur, þetta er samkomulag hans við félagið. Ef það breytist, þá opna ég á allt,“ sagði Maurizio Sarri, þjálfari Juventus en Mandzukic hefur ekki spilað neitt á tímabilinu.