Það er frábær leikur í gangi í Albaníu þessa stundina þar sem Ísland spilar við heimamenn.
Staðan er 2-2 þessa stundina en Kolbeinn Sigþórsson var að jafna metin fyrir strákana.
Kolbeinn var nýkominn inná sem varamaður og skoraði með sinni fyrstu snertingu sem er magnað.
Kolbeinn kann svo sannarlega að klára sín færi og var markið virkilega fallegt.
Þetta kallar maður innkomu í lagi! Kolbeinn skorar með sinni fyrstu snertingu! Koma svo!
Bein útsending: https://t.co/uwAhsv5WXF pic.twitter.com/t0uCVjsxHT— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) 10 September 2019