fbpx
Sunnudagur 03.maí 2026
433Sport

Jóhann Berg: Höfum sýnt að við getum náð í punkta gegn erfiðum liðum á útivelli

Hörður Snævar Jónsson
Sunnudaginn 24. mars 2019 14:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hörður Snævar Jónsson skrifar frá París:

Íslenska landsliðið kom til Parísar í gærkvöldi og mun síðdegis í dag æfa á Stade de France í úthverfi Parísar. Liðið leikur sov við heimamenn í undankeppni EM á morgun.

Íslenska liðið, vann góðan sigur á Andorra á föstudag og kemur til Parísar, þar sem stig eða sigur væru algjör bónus.

Hvort íslenska liðið komist í lokakeppni EM, stendur hvorki né fellur með því hvað gerist á morgun. Íslenska liðið hefur þó hins vegar oftar en ekki átt sína bestu leiki á erfiðum útivöllum, nægir að nefna sigra í Hollandi og Tyrklandi.

,,Ég vona að það henti okkur betur að spila gegn Frakklandi, en leikurinn gegn Andorra var sá mikilvægasti í þessum tveimur leikjum,“ sagði Jóhann Berg Guðmundsson, kantmaðurinn knái um leikinn.

,,Gegn Frakklandi úti verður gríðarlega erfitt, við höfum samt sýnt að við getum náð í punkta gegn sterkum liðum á útivelli.“

,,Við vissum að við yrðum að ná sigri gegn Andorra og það tókst.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Vill þjálfa aftur á Englandi

Vill þjálfa aftur á Englandi
433Sport
Fyrir 2 dögum

Besta deild kvenna: Tveir dramatískir sigrar

Besta deild kvenna: Tveir dramatískir sigrar
433Sport
Fyrir 2 dögum

Telur að Manchester United geti unnið deildina á næstu árum

Telur að Manchester United geti unnið deildina á næstu árum
433Sport
Fyrir 2 dögum

Ein fegursta kona heims slasaði sig – „Einn versti sársauki sem ég hef fundið“

Ein fegursta kona heims slasaði sig – „Einn versti sársauki sem ég hef fundið“