Hörður Snævar Jónsson skrifar frá París:
,,Að sjálfsögðu getum við náð einhverju, það er allt hægt,“ sagði Gylfi Þór Sigurðsson, stjarna íslenska landsliðsins um leikinn við Frakkland í undankeppni EM á morgun.
Íslenska landsliðið kom til Parísar í gærkvöldi og mun síðdegis í dag æfa á Stade de France í úthverfi Parísar. Liðið leikur sov við heimamenn í undankeppni EM á morgun.
Íslenska liðið, vann góðan sigur á Andorra á föstudag og kemur til Parísar, þar sem stig eða sigur væru algjör bónus.
Hvort íslenska liðið komist í lokakeppni EM, stendur hvorki né fellur með því hvað gerist á morgun. Íslenska liðið hefur þó hins vegar oftar en ekki átt sína bestu leiki á erfiðum útivöllum, nægir að nefna sigra í Hollandi og Tyrklandi.
,,Við verðum að spila betur við þá en við gerðum á Evrópumótinu, þeir eru með gott lið og þetta verður gríðarlega erfitt. Við höfum sýnt að þegar við spilum vel gegn stórþjóðum, þá erum við í möguleika.“