fbpx
Laugardagur 23.ágúst 2025
433

Juventus ætlar að gera allt til að næla í Emre Can

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 19. janúar 2018 16:11

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Emre Can, miðjumaður Liverpool er eftirsóttur þessa dagana.

Hann verður samningslaus í sumar og getur þá farið frítt frá Liverpool en hann hefur ekki viljað skrifa undir nýjan samning við félagið.

Juventus hefur mikinn áhuga á honum og þá er talið að Manchester City muni blanda sér í baráttuna um hann.

„Ég get ekki sagt til um það hvort Can muni skrifa undir nýjan samning við Liverpool,“ sagði Guiseppe Marotta, stjórnarformaður Juventus.

„Það eina sem ég get sagt er að við munum gera allt til þess að klófesta leikmanninn,“ sagði hann að lokum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Orðaður við mörg félög en gefur sterklega í skyn að hann verði áfram

Orðaður við mörg félög en gefur sterklega í skyn að hann verði áfram
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Hundsar fyrirmælin og mætti þrátt fyrir að vera með lifrarbólgu B – Var skipað að halda sig heima næstu mánuðina

Hundsar fyrirmælin og mætti þrátt fyrir að vera með lifrarbólgu B – Var skipað að halda sig heima næstu mánuðina
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Opnar sig um meiðsli liðsfélagans – „Það er mikil blóðtaka fyrir okkur“

Opnar sig um meiðsli liðsfélagans – „Það er mikil blóðtaka fyrir okkur“
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Davíð Smári: „Ég er ótrúlega stoltur og á engin orð“

Davíð Smári: „Ég er ótrúlega stoltur og á engin orð“