fbpx
Mánudagur 30.júní 2025
Matur

Búin að missa 100 kíló á ketó: Missti fullt af vinum í leiðinni – „Ég er sterkari sem aldrei fyrr“

Lilja Katrín Gunnarsdóttir
Sunnudaginn 3. febrúar 2019 10:30

„Ég elskaði sterkjumikil kolvetni eins og brauð, kartöflur og pasta. Og Pepsi. Fullt, fullt af Pepsi,“ segir Noelle.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég keppti í fimleikum sem barn og var alltaf í góðu formi. Ég var með þjálfara sem stjórnuðu því sem ég borðaði og ég vék sjaldan frá þeirra áætlunum. Það breyttist þegar ég hætti í þróttum sextán ára,“ segir Noelle Dawson í viðtali við Women’s Health.

https://www.instagram.com/p/BsOWKvsHFCj/

190 kíló eftir barnsburð

Noelle flutti að heiman þegar hún var átján ára og byrjaði að borða of mikið. Hún borðaði ekkert fram að hádegi en eftir það borðaði hún stanslaust allan daginn.

„Ég elskaði sterkjumikil kolvetni eins og brauð, kartöflur og pasta. Og Pepsi. Fullt, fullt af Pepsi,“ segir hún.

Þegar hún var 25 ára gömlu ákváðu hún og eiginmaður hennar að reyna að eignast börn en það gekk illa. Því ættleiddu þau þrjú börn á næstu fimm árum. Þegar að Noelle varð þrítug var hún tæp 160 kíló. Tveimur árum síðar varð hún ólétt.

https://www.instagram.com/p/Bsb-vgFnSRp/

„Eftir að ég fæddi dóttur mína bætti ég 27 kílóum í viðbót á mig og varð tæp 190 kíló – eitthvað sem ég vissi bara því ég þurfti að panta sérstaka vigt þar sem sú sem ég átti heima sýndi bara villu þegar ég stóð á henni. Ég var loksins móðir en ég óttaðist að deyja áður en ég sæi börnin mín vaxa úr grasi.“

https://www.instagram.com/p/BrVtqhMHYmj/

105 kíló á 14 mánuðum

Noelle ákvað því að breyta um lífsstíl. Hún byrjaði á því að hætta að drekka gos og byrja að drekka vatn. Hún byrjaði að borða eftir ketó-mataræðinu og borðaði sex máltíðir á dag.

https://www.instagram.com/p/Br32gThHXUE/

„Ég borðaði eingöngu kolvetni áður og því fannst mér skásti kosturinn að sleppa þeim. Ég skipti út uppáhalds kolvetnunum mínum og fékk mér til dæmis blómkálsstöppu í staðinn fyrir kartöflustöppu, og þróaði með mér smekk fyrir nýjum réttum, sem breytti lífinu mínu,“ segir hún. Á fjórtán mánuðum hefur hún losað sig við tæplega 105 kíló. Hún fylgir enn ketó-mataræðinu en er ekki jafn ströng og hún var þegar hún byrjaði. Þá er hún einnig dugleg að hreyfa sig og fer í ræktina fjóra til fimm daga í viku.

„Ég náði nýverið mikilvægum áfanga í hreyfingu: Ég lyfti 105 kílóum, nákvæmlega sömu þyngd og ég tapaði. Ég trúði því ekki að ég hefði verið að burðast með svona mikla þyngd í öll þessi ár,“ segir hún og bætir við að hún hafi einnig rifjað upp gamla fimleikatakta upp á síðkastið.

https://www.instagram.com/p/Bq8mD_7nzwM/

Vinir sýndu ekki stuðning

Þessi lífsstílsbreyting hefur þó ekki aðeins verið dans á rósum.

„Sum sambanda minna þjáðust. Ég missti nokkra vini á leiðinni en margir þeirra höfðu áhyggjur af því að borða fyrir framan mig eða sýndu mér einfaldlega ekki stuðning,“ segir hún og bætir við að hún sé ánægð með þann stað sem hún er á í dag.

„Mikilvægasti lærdómurinn á þessari vegferð er að maður þarf að rækta andlega heilsu jafnt og þá líkamlegu. Þetta tvennt fer saman. Ég var þunglynd áður en ég fór í þessa vegferð en ég gerði mér fljótt grein fyrir því að það að líta vel út og líða vel líkamlega lagaði ekki andlega heilsu. Nú er ég í þyngdinni sem ég ætlaði mér að vera í en ég get sagt að ég er heilbrigð og sjálfsörugg. Andlega heilsan er á pari við þá líkamlegu og ég er sterkari sem aldrei fyrr.“

https://www.instagram.com/p/Bs9aIzMHe-B/

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Matur
29.08.2024

Simmi Vill mætir með nýjung á Kjúklingafestival ársins

Simmi Vill mætir með nýjung á Kjúklingafestival ársins
Matur
03.08.2024

Hvað kostar 12″ pizzan víðs vegar um landið?

Hvað kostar 12″ pizzan víðs vegar um landið?
Matur
22.06.2024

Þetta eru augljós merki þess að veitingastaður er skítugur og þú ættir EKKI að borða þar

Þetta eru augljós merki þess að veitingastaður er skítugur og þú ættir EKKI að borða þar
Matur
18.06.2024

Bjóða upp á hamborgara frá ýmsum heimshornum

Bjóða upp á hamborgara frá ýmsum heimshornum