Davina McCall, sem er hvað þekktust fyrir að stýra bresku raunveruleikaþáttunum Big Brother, gaf út sinn fimmtánda DVD-disk með líkamsræktaræfingum í síðasta mánuði. Davina er 51 árs en hefur orðið fyrir barðinu á líkamssmánun síðustu misseri þar sem margir hafa gagnrýnt hana fyrir að vera of horaða. Þá hafa alls kyns flökkusögur farið á kreik um hvað hún borðar og hve mikið hún æfir. Telja einhverjir að hún sé haldin hættulegri þráhyggju er varðar hreyfingu og hreysti.
https://www.instagram.com/p/Brv1rNRFScs/
Í viðtali við fjölmiðilinn Metro sendir Davina neikvæðisröddum tóninn.
„Mig langar að vera boðberi heilbrigðis og hreystis og þess vegna pirrar það mig þegar fólk segir að ég sé of horuð, því ég er mjög heilbrigð,“ segir hún. „Ég meina, ég fer til læknis einu sinni á ári í læknisskoðun og á hverju ári segir hann: „Jahérna hér, þú ert stórkostleg.“ Og verð í raun sífellt heilbrigðari. Kólestórólið mitt er betra, blóðþrýstingurinn er frábær, BMI-stuðullinn er fullkominn, ég er innan eðlilegra marka, ég er ekki á botninum eins og neikvæðisraddirnar segja. Þannig að þetta pirrar mig því ég er mjög heilbrigð.“
https://www.instagram.com/p/BkTAtCqnLO5/
Davina segist oft freistast til að svara leiðindapésunum en sleppi því.
„Mig langar að svara en ég get það ekki því þá myndi þetta verða stórmál. En þegar einhver skrifar: Þú ert svona og hinsegin, langar partur af mér að skoða myndirnar þeirra og skrifa: Nú, þú ert bla, bla, bla. En ég geri það ekki því það er fáránlegt,“ segir stjarnan, sem er með tæplega milljón fylgjenda á Instagram.
Davina er ekkert fyrsta stjarnan til að tjá sig um líkamssmánun sem hún verður fyrir, en vonar að það sé deyjandi fyrirbrigði.
https://www.instagram.com/p/Bf5W2P3HZEO/
„Ég vona að þetta endist ekki því mér finnst þessi líkamssmánun vera eitthvað nýtt sem hverfur jafn fljótt og það birtist. Að það muni dofna og verða óspennandi því í raun er nóg af smánun í heiminum. Við þurfum ekki að gera hvort öðru þetta. Fólk þarf bara að hugsa um sig og hætta að dæma annað fólk,“ segir hún.
Eins og áður segir hefur mikið verið kjaftað um hvað Davina lætur ofan í sig, en í viðtalinu við Metro leiðréttir hún misskilning um mataræði sitt. Hún segist ekki vera á sykurlausu mataræði, ekki vera vegan og segist elska súkkulaði.
https://www.instagram.com/p/Bc6hAmPHFG0/
„Matur er bara matur. Ég borða hollt – ég elska fisk, ég elska kjöt, ég reyni að borða ekki tonn af rauðu kjöti og unnum kjötvörum en ég borða nánast hvað sem er,“ segir hún. „Ég vel holla valkosti en ég borða enn brauð, ég borða smjör, ég borða skonskur, ég elska hunang – hunang er sykur. Allir halda að ég borði ekki sykur en það er ekki rétt,“ bætir hún við. Hún segist þó reyna að halda sætmeti í lágmarki.
„Ég forðast kökur og ég forðast kex því þegar ég byrja get ég ekki hætt. Ég er núna að jafna mig á fimm daga, súkkulaðisukki þar sem ég borðaði súkkulaðistykki á hverjum degi. En nú er ég hætt. Ég er mennsk eins og allir aðrir en ég veit að ég er á þeim stað að mér hefur aldrei liðið betur með sjálfa mig.“
https://www.instagram.com/p/BZ0jrIFHvVu/