fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fréttir

Ökumenn gefa stefnuljós allt of seint

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 12. febrúar 2019 12:01

Væri ekki gott að sleppa við gatnaframkvæmdir að degi til á höfuðborgarsvæðinu?

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Fyrir nokkru gerði VÍS könnun á stefnuljósanotkun ökumanna sem beygðu af þjóðvegi 1 yfir á Biskupstungnabraut rétt vestan við Selfoss.
Mikill meirihluti ökumanna gaf stefnuljós eða 93%. Það sem var þó áberandi var hversu seint ökumenn gáfu stefnuljósin.“

Þetta segir í tilkynningu frá VÍS vegna fyrrnefndrar könnunar. Fylgst var með bílum sem óku í átt að Selfossi og voru að beygja inn á Biskupstungnabrautina. Niðurstöður leiddu í ljós að 60 prósent ökumanna gaf stefnuljós of seint, að er um leið og þeir beygðu inn á fráreinina eða eftir að komið var inn á hana.

„Stefnuljósin eru öryggistæki í umferðinni. Hafa þann tilgang að upplýsa ökumenn í kring ef á að breyta stefnu ökutækis. Það er því til lítils að setja stefnuljósið á þegar komið er inn á fráreinina. Það þarf að gera einhverjum metrum áður en komið er að henni,“ segir í tilkynningu frá Sigrúnu A. Þorsteinsdóttur, sérfræðingi í forvörnum hjá VÍS.

„Samkvæmt könnunum Samgöngustofu er skortur á stefnuljósanotkun annarra ökumanna það sem pirrar ökumenn mest í umferðinni. Við hvetjum alla til að líta í eigin barm og skoða hvort hægt sé að bæta stefnuljósanotkunina og draga með því t.d. úr líkum á aftanákeyrslum sem eru næst algengustu ökutjónin hjá VÍS.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Fordæmalaus staða gæti komið upp á gosstöðvunum á Reykjanesskaga – „Þetta er fyrsta skiptið sem við sjáum svona“

Fordæmalaus staða gæti komið upp á gosstöðvunum á Reykjanesskaga – „Þetta er fyrsta skiptið sem við sjáum svona“
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Yfirmaður úkraínsku leyniþjónustunnar er með áætlun tilbúna til að mæta yfirvofandi stórsókn Rússa

Yfirmaður úkraínsku leyniþjónustunnar er með áætlun tilbúna til að mæta yfirvofandi stórsókn Rússa
Fréttir
Í gær

Sigur hjá Harvey Weinstein: Dómi gegn honum í New York snúið við

Sigur hjá Harvey Weinstein: Dómi gegn honum í New York snúið við
Fréttir
Í gær

Sendiherra Trump á Íslandi þykist vera kúreki í kosningabaráttu sinni – „Það er ekki hægt að skálda þetta“

Sendiherra Trump á Íslandi þykist vera kúreki í kosningabaráttu sinni – „Það er ekki hægt að skálda þetta“